top of page
Kynferðisleg viðbrögð og hegðun.png

Kynferðisleg viðbrögð og hegðun 
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin

Einstaklingar geta brugðist líkamlega við kynferðislegri örvun, bæði líkamlegri og andlegri örvun. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi :

  • geti lýst hvernig kynferðisleg örvun getur birst hjá körlum og konum.

  • geti greint frá því að á meðan kynþroska stendur verða strákar og stelpur meðvitaðri um viðbrögð í tengslum við kynferðislega aðlöðun og örvun.

  • átti sig á og geti útskýrt að margar stelpur og strákar byrja að stunda sjálfsfróun á kynþroskaskeiðinu, og jafnvel fyrr.

  • átti sig á að sjálfsfróun veldur ekki líkamlegum eða tilfinningalegum skaða og beri að stunda í einrúmi.

Það er mikilvægt að geta tekið upplýstar ákvaðanir er snúa að kynferðislegri hegðun, þar á meðal ákvörðun sem snýr að því hvenær einstaklingur verður kynferðislega virkur. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi :

  • geti borið saman kosti og ókosti þess að seinka samförum og því að vera kynferðislega virkur.

  • skilur að skírlífi felur í sér að velja það að stunda ekki kynlíf.

  • geti rætt við aðra um hvernig áætlun þeirra fyrir framtíðina getur orðið fyrir áhrifum af þeim ákvörðunum sem teknar eru í tegnslum við kynlíf og sambönd.

bottom of page