top of page
Samskiptamiðlar.png

Fjölmiðlalæsi og kynvitund
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin

Sumir miðlar sýna óraunhæfar birtingarmyndir í tengslum við kyn, kynferði, kynhneigðir, sambönd og kynlíf. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • borið kennsl og og gagnrýnt óraunhæfar birtingarmyndir í miðlum er tengjast kynhneigð og kynferðislegum samböndum.

  • skoðað áhrif slíkra birtingarmynda á staðalímyndir kynjanna.

  • rætt og gagnrýnt áhrif samfélags- og fjölmiðla á fegurðarstaðla og kynjaðar staðalímyndir.

  • skoðað hvernig óraunhæfar birtingarmyndir um kyn, kynhegðun og sambönd geti haft áhrif á upplifun á eigin kyni, sjálfsmynd og sjálfstraust.

Það má storka þeim neikvæðu og ónákvæmu túlkunum á körlum og konum sem birtast á hinum margvíslegu miðlum.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • á gagnrýninn hátt skoðað jákvæð og neikvæð áhrif þeirra skilaboða sem miðlar senda um kyn, kynhneigð og sambönd.

  • komið með tillögur að því hvernig miðlar geta stuðlað að góðu kynheilbrigði, ábyrgri kynhegðun og jöfnuði kynjanna.

  • lýst því valdi sem miðlar hafa til að hafa jákvæð áhrif á staðalímyndir kynja, kynheilbrigði og jöfnuð.

bottom of page