top of page
Kynsjúkdómar.png

Kynsjúkdómar
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin

Sporna má við kynsjúkdómum, t.d. klamydíu, lekanda, sárasótt, HPV-veirunni eða HIV, lækna þá eða veita meðferð við þeim. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • lýst þeim leiðum sem mismunandi kynsjúkdómar geta smitast með (t.d. við samfarir, munnmök, óhreinar nálar eða blóðgjöf).

  • greint frá því að án kynsjúkdómar eru sjúkdómar sem smitast með samförum.

  • greint frá þeim leiðum sem hægt er að fara til að minnka líkurnar á því að smitast eða smita aðra af kynsjúkdómum, t.d. með réttri notkun smokksins, einkvæni, fjöldi bólfélaga og að fara reglulega í skimum við kynsjúkdómum.

  • útskýrt að sumir einstaklingar eru í áhættuhópi með tilliti til þess að fá kynsjúkdóma, t.d. HIV.

  • greint frá mikilvægi þess að geta rætt við maka/bólfélaga um notkun kynsjúkdómavarna og sýnt fram á getu til að neita að stunda óvarið kynlíf.

  • sýnt fram á hvernig rétt notkun smokksins/töfrateppis fer fram.

Allir einstaklingar, þ.á.m. þeir sem lifa með HIV, hafa jafnan rétt á því að tjá sínar kynferðislegu tilfinningar og ást gagnvart öðrum, t.d. í gegnum hjónaband eða langtíma sambönd, velji þeir að gera það. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • réttlætt og rætt á gagnrýnin hátt af hverju allir, þ.á.m. HIV smitaðir einstaklingar, eigi rétt á að tjá ást og kynferðislegar tilfinningar gagnvart öðrum einstaklingum.

  • sýnt fram á getu til þess að styðja við réttindi allra til að tjá eigin tilfinningar, óháð sjúkdómastöðu.

  • greint frá því og rætt við samnemendur um að sumir einstaklingar með HIV geta lifað heilbrigðu, löngu og afkastamiklu lífi með réttri meðferð og stuðningi.

Heibrigðisstofnanir bjóða upp á kynsjúkdómapróf og veita lækningu eða meðferð greinist einstaklingur með kynsjúkdóm. Þær bjóða einnig upp á fyrirbyggjandi meðferðir líkt og PrEP fyrir áhættuhópa. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • greint frá þeim leiðum sem hægt er að fara til að fara í kynsjúkdómapróf.

  • útskýrt hvað PrEP eða PEP er og hvernig það nýtist í að hindra HIV smit.

  • rætt um mikilvægi þess að allir einstaklingar hafi greiðan aðgang að kynsjúkdómaprófum.

  • greint frá því hvernig megi styðja vin í því að fara í kynsjúkdómapróf.

Samskipta-, samninga- og neitunarfærni getur hjálpað fólki að vinna gegn óvelkomnum kynferðislegum þrýstingi og stuðla að öruggri kynferðislegri hegðun (t.d. sífelldri notkun smokksins og annarra getnaðarvarna).

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • greint frá og rætt við samnemendur um hvernig hæfni einstaklinga til að ræða um notkun getnaðarvarna og öruggt kynlíf verður fyrir áhrifum af samfélagslegum stöðlum, viðhorfi, valdaójafnvægi, aldri, trú eða öðrum þáttum í umhverfinu.

  • sýnt fram á hæfni til að eiga í samskiptum um notkun getnaðarvarna, standast þrýsting og getu til að neita því að stunda óöruggt kynlíf.

bottom of page