top of page
KYNFRÆÐSLA
Samskipti, synjun og samningafærni
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Skilvirk samskipti felast í margvíslegum leiðum og aðferðum sem eru mikilvæg þegar kemur að því að tjá sig og skilja óskir annarra, þarfir og persónuleg mörk.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
lýst einkennum markvissra og ómarkvissra samskiptaleiða (bæði með og án orða). T.d. virk hlustun, tjá tilfinningar, sýna skilning, augnsamband og áhrif þess ef þessa þætti vantar.
-
gert grein fyrir mikilvægi þess að geta tjáð eigin óskir, þarfir og persónuleg mörk og sömuleiðis hlustað á slíkt hið sama frá öðrum einstaklingum.
-
áttað sig á og rætt þá staðreynd að þegar verið er að komast að samkomulagi, þá felur það í sér gagnkvæma virðingu, samvinnu og málamiðlun frá öllum hluteigandi aðilum.
-
leikið eftir eða lýst leiðum til að koma til skila eigin vilja, óskum, þörfum og mörkum ásamt því að geta hlustað og sýnt slíku virðingu hjá öðrum.
bottom of page